Hrossaræktafélag Biskupstungna

Hrossaræktafélag Biskupstungna Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Hrossaræktafélag Biskupstungna, Event Planner, Fellskot, Selfoss.

28/04/2023

Minnum á aðalfundinn sem verður haldinn föstudaginn í næstu viku 5.maí n.k :)

20/04/2023

Aðalfundur Hrossaræktafélag Biskupstungna verður haldinn föstudaginn 5.maí n.k kl 19:30 á Skjóli:
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Veitt verða verðlaun fyrir hæst dæmdu kynbótahross og ræktunarbú

03/02/2020

Kæru félagar ,folaldasyning Hrossaræktarfelags Biskupstungna verður haldin laugardaginn 22 febrúar í reiðhöllinni á Flúðum kl 13:00
Flokkar eru hestfolöld, merfolöld og gestaflokkur.
Takið daginn frá og fjölmennum í höllina, allir velkomnir.
Síðasti skráningardagur er fimtudaginn 20 feb
Skráning skal senda á netfangið [email protected]
Skráningargjald er kr.2500 á folald fyrir félagsmenn en kr. 3000 fyrir utanfélagsmenn.
Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:

Nafn folalds, uppruni
Móðir
Faðir
Litur
Eigandi og ræktandi folalds

Stjórnin

Aðalfundur og uppskeruhátíðin okkar var haldin á Skjóli þann 21 nóvember síðastliðin. 21 gestur mætti um kvöldið og bauð...
02/12/2019

Aðalfundur og uppskeruhátíðin okkar var haldin á Skjóli þann 21 nóvember síðastliðin.
21 gestur mætti um kvöldið og bauð hrossaræktarfelagið upp á kótilettur í raspi með öllu tilheyrandi.
Byrjað var á aðalfundi þar sem hefðbundin dagskrá var tekin fyrir
Skýrsla stjórnar
Ársreikningur
Kostningar
Inntaka nýrra félaga
Vetrardagskrá kynnt
Önnur mál
Kjósa þurfti um einn mann í stjórn en Sólon sem hefur gegnt starfi ritara félagsins gaf kost á sér áfram og hlaut kostningu áfram.
Þá tók við kaffihlé og því næst uppskeruhátíð þar sem verðlaunuð voru hæst dæmdu kynbótahross ræktuð af félagsmönnum á okkar félagssvæði.

Efst í hryssu flokki
1)Snilld frá Fellskoti ae 8.25
2)Sýr frá Torfastöðum ae 8.13
2)Hildur frá Fellskoti ae 8.13
3)Framsókn frá Austurhlíð 2 ae 8.06

Efstu stóðhestar
1)Rauðskeggur frá Kjarnholtum 1 ae 8.63
2)Álfaskeggur frá Kjarnholtum 1 ae 8.40
3)Hrafn frá Dalsholti ae 8.17

Ungstirni ársins er Tromma frá Kjarnholtum 1 fædd 2014 ae 8.02

Rækrunarbú ársins er Kjarnholt 1, Magnús Einarsson.

Óskar stjórn verðlaunahöfum sem og öðrum ræktendum til hamingju með gott ræktunarár.

Þá tóku við dýrindis kótilettur og höfðu menn á orði að betri lettur hefðu þeir ekki smakkað.
Gestir kvöldsins voru þau Hanna Rún Ingibergsdóttir og Hjörvar Ágústson reiðkennarar og tamningamenn að Kirkjubæ. Kynntu þau sig og sýna starfsemi og var virkilega gaman og fræðandi að hlusta á þau.

María Birna Þórarinsdóttir og Kristinn Antonsson voru gerð að heiðursfélögum þetta kvöld fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Bæði tvö eru búin að starfa fyrir félagið í háa herrans tíð og enn er verið að leitast eftir þeirra kröftum. Hrossarækt þeirra þarf vart að kynna enda búin að marka spor í íslenska hrossarækt og er það okkur ljúft og skylt að veita þeim smá þakklætisvott fyrir vel unnin störf.

Takk fyrir😊

18/11/2019

Aðalfundur og Uppskeruhátíð
Hrossaræktarfélags Biskupstungna

Verður haldinn í Skjóli fimmtudaginn 21.nóv. 2019 kl. 19.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Veitt verða verðlaun fyrir hæst dæmdu kynbótahross og ræktunarbú 2019.
Lambakótelettur í boði félagsins.
Gestir kvöldsins verða Hjörvar Ágústsson og Hanna Rún Ingibergsdóttir tamningarfólk í Kirkjubæ, Rangárvallasýslu.
Félagar takið kvöldið frá.



Stjórnin

Efstu folöldin í gestaflokki á folaldasýningunni. 1. sæti Vörður frá Reykjadal brúnnF. Viti frá KagaðarhóliM. Framsókn f...
19/03/2019

Efstu folöldin í gestaflokki á folaldasýningunni.
1. sæti Vörður frá Reykjadal brúnn
F. Viti frá Kagaðarhóli
M. Framsókn frá Litlu-Gröf
Rækt.og.eig. Guðríður Eva Þórarinsdóttir og Jón Willian Bjarkarson
2.sæti Sansa frá Kjarnholtum jarpstjörnótt
F. Rauðskeggur frá Kjarnholtum
M. Védís frá Kjarnholtum
Rækt. Magnús Einarsson
Eig. Ása María Ásgeirsdóttir
3. sæti Spáta frá Kaldbak rauðstjörnótt
F. Ferill frá Ketilvöllum
M. Eik frá Minni-Borg
Rækt..og eig.Ása maría Ásgeirsdóttir

Hestarnir sem voru í 3 efstu sætunum voru.1. sæti Skugga Sveinn frá Austurhlið  brúnnF. Hrannar frá Flugumýri 2M. Ör frá...
19/03/2019

Hestarnir sem voru í 3 efstu sætunum voru.
1. sæti Skugga Sveinn frá Austurhlið brúnn
F. Hrannar frá Flugumýri 2
M. Ör frá langstöðum
Rækt. og. eig. Trausti Hjálmarsson og Kristín S. Magnúsdóttir
2 sæti. Alex frá Bræðratungu rauðskjóttur
F. Sindri frá Bræðratungu
M. Gáta frá Bræðratungu
Rækt. eig. Kjartan Sveinsson og Guðrún Magnúsdóttir
3 . sæti. Granít frá Haukadal brúnn
F.Greipur frá Haukadal
M. Gáta frá Vatnsleysu
Rækt. og. eig. Nóra Waldenkrantz

Myndir af hestaflokknum á folaldasýningunni
19/03/2019

Myndir af hestaflokknum á folaldasýningunni

Hryssurnar sem voru í 3 efstu sætunum á folaldasýningunni voru. 1.sæti Embla frá Felli  rauð F. Ferill frá Ketilvöllum M...
19/03/2019

Hryssurnar sem voru í 3 efstu sætunum á folaldasýningunni voru.
1.sæti Embla frá Felli rauð
F. Ferill frá Ketilvöllum
M. Ósk frá Hellulandi
Ræktandi og eig. Kristján Ketilsson
2. sæti Kná frá Kjarnholtum,1 jörp
F. Rauðskeggur frá Kjarnholtum 1
M. Hera frá Kjarnholtum 1
Rækt. og eig. Magnús Einarsson
3. sæti. Edda frá Bræðratungu rauðstjörnótt
F. Spaði frá Stuðlum
M. Eskja frá Bræðratungu
Rækt. og. eig. Kjartan Sveinsson og Guðrún Magnúsdóttir

Address

Fellskot
Selfoss
801

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hrossaræktafélag Biskupstungna posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hrossaræktafélag Biskupstungna:

Share

Category