Veislu Kökur

Veislu Kökur Öll tilefni verðskulda köku, stóra, smáa, flókna eða einfalda, hefðbuna eða eitthvað alveg nýtt. Góðri köku eru engin takmörk sett.

Hjónabandssæla Ef einhver veit af hverju þessi kaka ber svona skemmtilegt nafn má sá hinn sami segja mér frá því hér fyr...
06/06/2021

Hjónabandssæla
Ef einhver veit af hverju þessi kaka ber svona skemmtilegt nafn má sá hinn sami segja mér frá því hér fyrir neðan 🥰
Kakan er mjög einföld.
150 gr. Sykur
250 gr. Hveiti
200 gr. Smjör (eða smjörlíki)
1/2 tsk. Lyftiduft
1/2 tsk. Matarsódi
140 gr. Haframjöl
1 stórt egg
Sulta! (Klassísk hjónabandssæla er gerð með rabbabara sultu en ég hef notað blandaða berjasultu og jarðaberjasultu með góðum árangri)

Blandið öllu nema sultunni saman í hrærivél. Úr verður nokkuð meðfærilegt deig.
Takið um 1/4 af deiginu til hliðar - það nýtist sem skraut á kökuna.
Setjið deigið í kökuform og mótið botninn á kökunni og kantana.
Hellið sultu í botninn (um hálfs sentimetra lag af sultu er nóg, en þetta fer auðvitað eftir smekk.)
Setjið afganginn af deiginu á toppinn, rendur eru klassískar, það má líka gera mulning.
Ég prófaði að skipta kökunni í hólf og setja rabbabara og blandaða berjasultu til skiptis í hólfin 😀
Bakað við 180 í um 30 mín (ég nota blástur og tek hana út þegar liturinn er gullinbrúnn, kakan farin að losna frá köntunum og sultan búin að þétta sig).
Set svo í kæli og borða helst daginn eftir.

Gulrótarkaka3 dl olía200 gr púðursykur4 egg300 gr hveiti1 tsk matarsódi1 tsk lyftiduft2 msk kanill1/4 tsk múskat1/4 tsk ...
18/05/2021

Gulrótarkaka
3 dl olía
200 gr púðursykur
4 egg
300 gr hveiti
1 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
2 msk kanill
1/4 tsk múskat
1/4 tsk negull
1 tsk vanillusykur
400 gr gulrætur -rifnar

Egg og sykur þeytt saman þar til létt og ljóst.
Olíu bætt við.
Þurrefnum blandað saman og bætt í skálina.

Sett í vel smurt form og bakað í 40 mín við 160 gráður. (Eða þar til hinn klassíski prjónn kemur hreinn úr.

Kremið er 250 gr rjómaostur þeyttur með smá rjóma og 2 dl af flórsykri og smá skvettu af vanilludropum.

Skrautið er heimagerð karamella, ljósa er úr strásykri en dökka úr púðursykri.
Ég stráði sykri á pönnu, setti klípu af smjöri og skvettu af rjóma. Þegar þetta fór að malla hellti ég því á bökunarpappír og stráði hnetum yfir.

Bakaði eplatertu 2 egg200 gr sykur100 gr smjör200 gr hveiti1 msk vanillusykur1 msk kanill2 epli (söxuð)2-3epli (skorin í...
07/05/2021

Bakaði eplatertu
2 egg
200 gr sykur
100 gr smjör
200 gr hveiti
1 msk vanillusykur
1 msk kanill
2 epli (söxuð)
2-3epli (skorin í sneiðar)
50 gr hvítt súkkulaði
25 gr marsipan
Möndluflögur (stráð yfir)
Kanilsykur (stráð yfir)

Egg og sykur þeytt ljóst og létt.
Smjör brætt og hellt út í.
Þurrefnum blandað við.
Söxuðum eplum, marsipani og súkkulaði blandað við.
Hellið í formið.
Bakið við 180 í 40-50 mín.

Kakan er blaut en mjög góð með vanillu ís eða rjóma.

Vatnsdeigsbollur150gr smjör4dl vatn200 gr hveiti3-4 eggSmjör og vatn hitað samanHveiti bætt viðHræra vel og kæla Bæta eg...
23/02/2020

Vatnsdeigsbollur
150gr smjör
4dl vatn
200 gr hveiti
3-4 egg

Smjör og vatn hitað saman
Hveiti bætt við
Hræra vel og kæla
Bæta eggjum í
Hræra meira
Móta með skeiðum
Baka 25 mín
200 gráður

Ég get stundum ekki hamið mig ef ég fæ flugu í hausinn. Ég sá fyrir mér að það væri alveg tilvalið að gera kransaköku ug...
22/02/2020

Ég get stundum ekki hamið mig ef ég fæ flugu í hausinn. Ég sá fyrir mér að það væri alveg tilvalið að gera kransaköku uglu!

16/02/2020

Broddgöltur
Svampbotn með jarðarberjum og jarðarberja frómas, marsipan hjúpur með súkkulaði og Maltesers fyrir nef!

Súkkulaðibitakökur100 gr smjör - við stofuhita150 gr sykur150 gr púðursykur2 tsk vanilludropar2 egg400 gr hveiti1 tsk ly...
14/02/2020

Súkkulaðibitakökur

100 gr smjör - við stofuhita
150 gr sykur
150 gr púðursykur
2 tsk vanilludropar
2 egg
400 gr hveiti
1 tsk lyftiduft
1tsk salt
200 gr súkkulaði - saxað gróft

Þeyta smjöri, sykri og eggjum saman.
Bæta vanilludropum, lyftidufti og salti við.
Hræra hveiti við í 2 skömmtum.
Móta í kúlur.
Baka í 10 mín.

Gerði svona víkingaskip um daginn, allt úr kransakökumassa 😀
14/02/2020

Gerði svona víkingaskip um daginn, allt úr kransakökumassa 😀

Sykurpúða hausar á priki fyrir hrekkjavöku !!Matarlitspenni fyrir andlitin og candy-floss í skraut.Einfalt og skemmtileg...
05/11/2015

Sykurpúða hausar á priki fyrir hrekkjavöku !!
Matarlitspenni fyrir andlitin og candy-floss í skraut.
Einfalt og skemmtilegt

Þetta er það sem gerist þegar blómaformin eru loksins rifin út úr geymslunni og dóttirin fær frjálsar hendur... kanski m...
20/09/2015

Þetta er það sem gerist þegar blómaformin eru loksins rifin út úr geymslunni og dóttirin fær frjálsar hendur... kanski maður hrökkvi í gang aftur :)

Captain America skjöldurinn :)
19/09/2015

Captain America skjöldurinn :)

Hér er margt sem mætti prufa, Nammi namm :)https://imgur.com/gallery/4tjy6
21/05/2015

Hér er margt sem mætti prufa, Nammi namm :)
https://imgur.com/gallery/4tjy6

The Internet's visual storytelling community. Explore, share, and discuss the best visual stories the Internet has to offer.

Address

Reykjavík
110

Telephone

6991637

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Veislu Kökur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category