22/04/2026
50% afsláttur af öllum vörum
á netsíðunni á meðan birgðir endast.
Kæru viðskiptavinir
Eftir miklar vangaveltur um framhald á netsölu
þá er ljóst að ef af verður að allt þarf sinn tíma.
Nú er langt liðið á vorið svo að við höfum ákveðið að
kaupa ekki inn og bæta á lagerinn í bili.
Leit að hentugu húsnæði hefur ekki gengið,afhendingartími á pöntunum langur,verð á flutningi,innkaupaverð og fl. eru í hæðstu hæðum.
Þrátt fyrir ótrúleg viðbrögð og jákvæðar undirtektir frá okkar góðu viðskiptavinum á útsölunni eigum við enn nokkuð af vörum að bjóða.
Endilega kíkja yfir síðuna okkar, vonandi getiði gert góð kaup á vönduðum og fallegum vörum.
Nú er tilvalið að bæta við Autopot settum og íhlutum, splæsa í sjálfvirka vökvun í gróurhúsið, fá sér Gardena vökvunarklukku, grátslöngur og fleira í gróðuhúsið.
** Allar pantanir verða afgreiddar í gegnum Íslandspóst eða Dropp.
** afsláttur kemur fram þegar sett er í körfuna** auðvelt að breyta og bæta