27/08/2019
Í tilefni af útkomu nýrrar plötu Bubba Morthens, Regnbogans stræti, sem kom út 9. Ágúst s.l. verða haldnir útgáfutónleikar á völdum stöðum um landið. Þrjú lög af plötunni eru komin í spilun og viðtökurnar hafa verið hreint út sgt stórkostlegar. Lagið Velkomin rataði í 1. sæti vinsældarlistanna og er Bubbi þar hárbeittur að vanda í umræðunni um flóttamenn. Án þín, þar sem hann syngur dúett með Katrínu Halldóru Sigurðardóttir nýtur álíka vinsælda og Velkomin og nú er þriðja lagið komið í spilun sem ber nafnið límdu saman heiminn minn. Margir halda því fram að að Regnbogans stræti sé eitt af meistaraverkum Bubba. Eitt er víst að byrjunin lofar afar góðu.
Í tilefni af útkomu nýrrar plötu Bubba Morthens, Regnbogans stræti, sem kom út 9. Ágúst s.l. ver...