Sjómannadagsráð Patreksfjarðar

Sjómannadagsráð Patreksfjarðar Sjómannadagurinn á Patreksfirði
Sjómannadagurinn
Patreksfjörður

11/06/2026
Sjómannadagsráð Patreksfjarðar vill færa öllum okkar frábæru styrktaraðilum innilegar þakkir fyrir stuðninginn við Sjóma...
11/06/2026

Sjómannadagsráð Patreksfjarðar vill færa öllum okkar frábæru styrktaraðilum innilegar þakkir fyrir stuðninginn við Sjómannadaginn 2026.

Án ykkar væri ekki hægt að standa að jafn glæsilegri og fjölbreyttri hátíð fyrir íbúa og gesti. Stuðningur ykkar skiptir sköpum og gerir okkur kleift að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá og skapa eftirminnilegar stundir fyrir alla.

Takk fyrir að standa með samfélaginu og Sjómannadeginum á Patreksfirði. ⚓️

🏆 Til hamingju með sigurinn!Rut Sigurðardóttir bar sigur úr býtum í Kraftakeppninni Þriggja manna tak um Sjómannadagshel...
08/06/2026

🏆 Til hamingju með sigurinn!

Rut Sigurðardóttir bar sigur úr býtum í Kraftakeppninni Þriggja manna tak um Sjómannadagshelgina 2026. Hér tekur hún við verðlaunabikarnum úr höndum fulltrúa Sjómannadagsráðs.

Við óskum Rut innilega til hamingju með glæsilegan árangur og þökkum öllum keppendum fyrir frábæra þátttöku og skemmtilega keppni! 💪🎉

Á Sjómannadaginn var afhjúpaður minningarskjöldur um Magnús Þór Hafsteinsson sem fórst af slysförum í fyrra.Við athöfnin...
08/06/2026

Á Sjómannadaginn var afhjúpaður minningarskjöldur um Magnús Þór Hafsteinsson sem fórst af slysförum í fyrra.

Við athöfnina flutti bróðir hans falleg minningarorð áður en skjöldurinn var afhjúpaður. Með þessum minningarskildi er heiðruð minning Magnúsar og hans verður ávallt minnst meðal sjómanna og samfélagsins.

Minningarorð bróður hans fara hér á eftir.

Kæru vinir

Ég heiti Gunnar Freyr Hafsteinsson yngsti bróðir Magnúsar.

Við höfum átt hérna yndislega daga með ykkur, frábær dagskrá og margt að sjá.

Ég vil þakka ykkur öllum fyrir að vera hér í dag til að minnast bróður míns Magnúsar og tryggs félaga hans. Odds Stýrimanns.

Það er erfitt að trúa því að ár sé liðið frá því að við misstum Magnús í þessu hörmulega sjóslysi. Söknuðirinn er enn mikill, en um leið er gott að koma saman og minnast hans með hlýju og virðingu.

Magnús var mér kær bróðir og ég er þakklátur fyrir allar þær minningar sem við áttum saman. Þær geymi ég í hjarta mínu og mun alltaf gera. Oddur var einnig stór hluti af lífi hans, tryggur félagi sem fylgdi honum gegnum lífið, og því er fallegt að þeirra sé minnst saman í dag.

Mig langar sérstaklega að þakka dætrum Magnúsar fyrir þetta fallega og hlýja framtak að koma að gerð þessa minningarskjaldar, með því heiðra þær minningu föður síns á fallegan hátt og tryggja að minning hans lifi áfram fyrir komandi kynslóðir.

Einnig vil ég færa íbúum Patreksfjarðar innilegar þakkir fyrir alla þá samúð, hlýju og stuðning sem fjölskylda okkar hefur fundið fyrir á þessum erfiða tíma. Samstaðan og umhyggjan sem okkur hefur verið sýnd hefur skipt miklu máli og mun aldrei gleymast.

Þó Magnús sé ekki lengur meðal okkar lifir minning hans áfram í fjölskyldu hans, vinum og öllum þeim sem áttu samleið með honum.

Megi minning Magnúsar og Odds stýrimanns vera blessuð.

Frá mínum dýpstu hjartarótum, þakka ég ykkur fyrir allt.

📢 TILKYNNING 📢Vegna óviðráðanlegra orsaka þurfum við því miður að gera breytingu á dagskránni.Barnaballið fellur niður e...
06/06/2026

📢 TILKYNNING 📢

Vegna óviðráðanlegra orsaka þurfum við því miður að gera breytingu á dagskránni.

Barnaballið fellur niður en í staðinn verður haldið
BARNADISKÓTEK OG KARMELLUKAST 🍬

Við lofum góðri stemningu, skemmtilegri tónlist og fullt af sælgæti fyrir krakkana!

Við biðjumst velvirðingar á þessum breytingum og vonumst til að sjá sem flesta hressa krakka mæta og skemmta sér með okkur.

✨ Sjómannadagsráð Patreksfjarðar ✨

Þessi Matarvagn opnar kl 16:00 í dag  hann er staðsettur fyrir utan Verbúðina
05/06/2026

Þessi Matarvagn opnar kl 16:00 í dag
hann er staðsettur fyrir utan Verbúðina

🌈 Tilkynning um breytta staðsetningu! 🌈Vegna aðstæðna verður Litaland með Leikhópnum Lottu haldið í Íþróttahúsinu Bröttu...
05/06/2026

🌈 Tilkynning um breytta staðsetningu! 🌈

Vegna aðstæðna verður Litaland með Leikhópnum Lottu haldið í Íþróttahúsinu Bröttuhlíð í dag.

🕔 Sýning hefst kl. 17:00

Við hlökkum til að sjá sem flesta í litríkri og skemmtilegri stund með Leikhópnum Lottu! 🎭✨

📍 Íþróttahúsið Bröttuhlíð
🕔 Kl. 17:00 í dag

Deilið endilega áfram svo upplýsingarnar berist sem flestum. 😊

🚩 Gullkistan Vestfirðir á Patreksfirði!Föstudaginn 5. júní kl. 13:00–16:00 opna fyrirtæki á svæðinu dyr sínar fyrir gest...
05/06/2026

🚩 Gullkistan Vestfirðir á Patreksfirði!

Föstudaginn 5. júní kl. 13:00–16:00 opna fyrirtæki á svæðinu dyr sínar fyrir gestum. Frábært tækifæri til að kynnast atvinnulífi, fólki og fjölbreyttri starfsemi Vestfjarða.

Hvetjum alla til að líta við og upplifa það sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða! 💙💚

Komdu í heimsókn og kynntu þér kröftugt atvinnu- og menningarlíf um alla Vestfirði. Á bæjarhátíðum ársins opna fyrirtæki og þátttakendur dyr sínar, sýna hvað býr að baki og bjóða gestum að kynnast hugviti, menningu og kraftinum sem mótar svæðið.

🎤 Ekki gleyma Birnu Rún í kvöld! 🎤Það er komið að því! Uppistandssýningin Bremsulaus með Birnu Rún fer fram í Félagsheim...
04/06/2026

🎤 Ekki gleyma Birnu Rún í kvöld! 🎤

Það er komið að því! Uppistandssýningin Bremsulaus með Birnu Rún fer fram í Félagsheimili Patreksfjarðar í kvöld.

Ef þið eruð til í gott kvöld, fullt af hlátri og skemmtun, þá er þetta eitthvað sem þið viljið ekki missa af! 😄

Tökum vel á móti Birnu Rún og fjölmennum á sýninguna. Sjáumst í FHP í kvöld! 🎭😂

Miðasala á tix.is og við hurð.

🏃‍♂️🏃‍♀️ Eyfahlaupið fer fram síðar í dag! 🏃‍♀️🏃‍♂️Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í þessum skemmtilega viðbur...
04/06/2026

🏃‍♂️🏃‍♀️ Eyfahlaupið fer fram síðar í dag! 🏃‍♀️🏃‍♂️

Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í þessum skemmtilega viðburði, hvort sem þú ætlar að hlaupa af krafti eða taka rólegt skemmtiskokk með fjölskyldu og vinum.

Ef þú ætlar ekki að hlaupa sjálf(ur), þá skiptir miklu máli að mæta og hvetja hlauparana áfram á brautinni. Góð stemning og stuðningur frá áhorfendum gerir gæfumuninn! 👏

Komum saman, hreyfum okkur og eigum skemmtilegan dag í góðum félagsskap. Sjáumst hjá Bröttuhlíð

🎉🏃‍♀️ Á morgun er komið að því! 🏃‍♂️🎉

Eyfahlaupið verður ræst frá Bröttuhlíð og við vonumst til að sjá sem flesta taka þátt í þessari frábæru hlaupaveislu!

Hvort sem þú ætlar að hlaupa, skokka, ganga eða standa á hliðarlínunni og hvetja hlauparana áfram þá skiptir þú máli. 👏

Tökum sérstaklega vel á móti yngstu þátttakendunum, fyllum hlaupaleiðina af brosum, lófataki og góðri stemningu og gerum þetta að eftirminnilegum degi fyrir alla!

Sjáumst á morgun! 🏃‍♀️🏃‍♂️

Address

Hafnarsvæðið
Patreksfjörður
450

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sjómannadagsráð Patreksfjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Sjómannadagsráð Patreksfjarðar:

Share