Viktor Pétur, 3. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði

Viktor Pétur, 3. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson, 3. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.

06/05/2026

Ungt fólk velur Hafnarfjörð vegna stefnu Sjálfstæðisflokksins. Hér er gott að búa og ungt fólk og fjölskyldur settar í forgang.

Ungt fólk er að velja Sjálfstæðisflokkinn því að við látum verkin tala og fólk er ánægt í bænum. Höldum því svoleiðis og forðumst Reykjavíkurmódelið í Hafnarfirði.

05/05/2026

Hamingjan er í Hafnarfirði, höldum því svoleiðis!

Ekki kjósa bara eitthvað, kjóstu Sjálfstæðisflokkinn! Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði

(Það er bannað að gera grín að hárinu mínu)

Hafnarfjörður er besti staður í heimi, sjáum til þess að hann verði það til framtíðar!
22/04/2026

Hafnarfjörður er besti staður í heimi, sjáum til þess að hann verði það til framtíðar!

Hafnarfjörður er besti staður í heimi. Hér sameinast sterkt samfélag, öflug þjónusta, frábært íþrótta- og menningarlíf, stutt í náttúruna og einstakur bæjarandi sem finnst hvergi annarsstaðar.

Veljum ungt fólk sem talar fyrir hagsmunum fjölskyldunnar og framtíðarkynslóða. Flensborg milli klukkan 10:00 og 18:00!
06/02/2026

Veljum ungt fólk sem talar fyrir hagsmunum fjölskyldunnar og framtíðarkynslóða.

Flensborg milli klukkan 10:00 og 18:00!

Kæru vinir, Hér er ræða mín frá framboðsfundi okkar Sjálfstæðismanna sem haldin var í Bæjarbíói á þriðjudaginn var! Full...
05/02/2026

Kæru vinir, Hér er ræða mín frá framboðsfundi okkar Sjálfstæðismanna sem haldin var í Bæjarbíói á þriðjudaginn var! Fullur salur og mikill stuðningur við flokkinn okkar! Ég hlakka til baráttunnar fram að kosningum þar sem við sjálfstæðismenn verðum með frábæran lista!

Kæru Hafnfirðingar.
Kæru sjálfstæðismenn.
Það er gott að vera hér í kvöld og sjá sal fullan af fólki sem lætur sig Hafnarfjörð varða. Og eins og allt skynsamt fólk þá kjósum við Sjálfstæðisflokkinn. Í raun er hér rjómi þjóðarinnar, Hafnfirskir Sjálfstæðismenn.
Ég heiti Viktor Pétur Finnsson og ég er hafnfirðingur í húð og hár. uppalinn hér og með djúpar rætur bæði í Hafnarfirði og Sjálfstæðisflokknum. Afi minn, Árni Grétar Finnsson var hér oddviti á árum áður og hefur fjölskyldan mín verið virk í starfi flokksins í lengri tíma.
Ég býð mig fram vegna þess að ég trúi á bæinn okkar. Vegna þess að Hafnarfjörður er einstakur bær þar sem er frábært að alast upp, ala upp börn, eldast og verja ævinni.
Ég vil að Hafnarfjörður sé áfram, raunverulegur valkostur við önnur sveitafélög. Þar sem álögur á íbúa eru lágar, samgöngur góðar, leik og grunnskólar til fyrirmyndar, öflugt æskulíðsstarf, sterk velferð og að sveitafélagið auðveldi íbúum lífið.
Ég finn að undanfarið hefur ungt fólk leitað í Hafnarfjörð sökum þess hve illa hefur farið í Reykjavík í samgöngu, leikskóla og húsnæðismálum. Fjölskyldur koma hingað í leit að auðveldara og betra lífi og því er nauðsynlegt í kosningunum í vor að við höfum öflugan málsvara í okkar liði sem nær þessu unga fólki nær flokknum. Vel hefur gengið í meirihlutatíð Sjálfstæðisflokksins og við þurfum að halda áfram.
Hér hefur verið sýnt að hægt er að ná tökum á leikskólavandanum án þess að hækka gjöld. Hægt er að hafa blómlegan miðbæ með bílastæðum og að hægt er að framkvæma og reka bæinn vel án þess að hækka skatta.
Ég vil bæ sem stendur með atvinnulífinu.
Bæ sem leggur ekki stein í götu þeirra sem skapa störf, heldur ryður brautina.
Bæ sem er snyrtilegur, lifandi og stoltur af sjálfum sér.
Ég hef fengið tækifæri til að starfa víða – ég hef tekið sæti á Alþingi, unnið í banka, sem flugþjónn, sem umsjónarmaður hljómsveitar, sem leikstjóri, sem blaðamaður og margt fleira.
Mér hefur hlotnast sá heiður að fá að sinna formennsku margra félagasamtaka eins og SUS, Stefnis og Vöku. Ég er nú ungmennafulltrúi íslands hjá Sameinuðu Þjóðunum og sit í Háskólaráði HÍ. Ég þekki það að vera málsvari stórs hóps og að fá fólk til að vinna saman að sameiginlegu markmiði með sjálfstæðisstefnuna að leiðarljósi.
Kæru vinir.
Sjálfstæðisflokkurinn og Hafnarfjörður eru mér hvoru tveggja mjög kær og ég brenn fyrir bæinn minn.
Ég bið um ykkar stuðning í 2 sætið. Því ég vil að Hafnarfjörður sé ekki bara valkostur heldur fyrsti valkostur.

03/02/2026

Nú tökum við næsta skref!

01/02/2026

Ég heiti Viktor Pétur og óska eftir þínum stuðningi í 2. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Saman náum við árangri.

Address

Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Viktor Pétur, 3. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share