11/04/2026
Lokahóf Hlaupaseríu hlaupahóps FH og Hlaupár var haldið í vikunni. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sæti seríunnar í karla og kvennaflokki auk aldursflokkaverðlauna.
Sigurvegarar hlaupaseríunnar 2026 voru Íris Anna Skúladóttir og Atli Jasonarson. Í öðru sæti voru Arndís Ýr Hafþórsdóttir og Adrian Graczyk. Í þriðja sæti voru Daltós Inga Ingadóttir og Einar Hjörvar Benediktsson.
Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn.
Einnig var dreginn út fjöldi útdráttarvinninga sem fjöldi fyrirtækja styrkti okkur með og kunnum við þeim miklar og góðar þakkir fyrir stuðninginn.
Hlökkum til að sjá ykkur öll aftur í janúar 2027.
Hleðsla íþróttadrykkur Ölgerðin Egill Skallagrímsson
📸Ragnhildur Adalsteinsdottir