
11/12/2024
Jólahjarta Hafnarfjarðar og jólatjaldið á bak við Bæjarbíó opnar kl 19:00 fimmtudaginn 12. desember vegna einkasamkvæmis.
Opnunartími næstu helgi 12. - 14.des er því svona:
Fimmtudagur frá kl 19:00-22:00
Föstudagur frá kl 17:00-22:00
Laugardagur frá kl 17:00-22:00
Komið og njótið samveru á aðventunni í upphituðu tjaldinu. Við bjóðum upp á heita og kalda drykki í tjaldinu okkar og tökum fallega á móti ykkur. 🎪❤️
🍻Happy Hour frá. kl 17:00-20:00 alla daga sem opið er
🍲 Jólahumarsúpa Tilverunnar verður á boðstólnum milli kl 17:00 - 20:00
🎶 Jólalögin óma í tjaldinu og jólaandinn svífur svo sannarlega yfir vötnum í (Jóla)hjarta Hafnarfjarðar
🧣 Við lánum teppi fyrir þá sem koma í tjaldið á meðan birgðir endast
Hlökkum mikið til að sjá ykkur í tjaldinu!