30/05/2026
LANGAR ÞIG AÐ VERÐA SJAKRADANS KENNARI?
Konur eru byrjaðar að skrá sig í kennaranámið.
- HEILUNARMÁTTUR DANSINS
Það má líta á Sjakradanskennslu sem þerapíu eða dansmeðferð, því þú átt eftir að sjá hvernig líflausir nemendur sem byrjuðu hjá þér, breytast í lífsglaðari manneskjur er líður á námskeiðið.
Þegar við dönsum meðvitað inn í sjö stærstu orkustöðvar líkamans þá erum við að skapa dansmeðferð.
Þegar við leiðum fólk inn í þessa töfrandi danstíma þá erum við sem leiðtogar að hjálpa þátttakendum að uppgötva gleði sína og kraft á ný.
Sumir tala um að innra barnið þeirra hafi komið úr felum þegar farið var að dansa aftur. Innst inni elskum við öll að dansa en erum mörg orðin föst í einhverju allt öðru en dansgleði.
Tengingin á milli hugar og líkama styrkist í dansinum. Fólk upplifir að líkami þeirra getur hreyft sig allskonar, fólk sem var kannski hætt að hreyfa sig af einhverju viti. Allir upplifa það að geta hreyft sig í þessum tímum því við erum öll fædd til að dansa á okkar hátt. Innra með okkur leynist náttúrlegur dansari.
Fólk finnur hvernig flæði þeirra eykst í lífinu sjálfu fyrir utan danstímana. Það finnur hvernig líkamsstyrkurinn vex og úthald eykst. Skapandi fólk verður meira skapandi og þeir sem eru hættir að skapa, byrja að skapa aftur og fá fleiri hugmyndir.
Sjakradanskennarinn græðir auðvitað helling á þessari kennslu. Hún mun efla með sér alla þessa tækni til að leiða aðra á öruggan hátt.
Allur líkaminn, frumurnar, vöðvarnir, bandvefurinn, andinn og Sálin verða eitt þegar við erum ekkert að hugsa heldur bara dönsum eftir þessari aðferð.
Þú ert með lyklana að töfraveröld danshreyfingar eftir öflugt Sjakradans kennaranám í byrjun júlí!
Leyfðu þér að vaxa inn í fallegt líf.
Hlustaðu á hjarta þitt. Vertu tilbúin að stökkva!
Hjartað veit hvert ferðinni er heitið. Það hræðist ekki neitt. Hjartað gefur þér hugrekki. Það fóðrar ekki óttann en það gerir hugur okkar. Hugurinn vegur og metur, dregur úr þér og vill ekki breytingar því þær tákna útvíkkun. Hugurinn vill vera á nákvæmlega sama stað ár eftir ár. Engar breytingar takk!
Hjartað er áttavitinn sem við eigum að hlusta á. Merkin sem hjartað sendir okkur um að eitthvað sé rétt ákvörðun, er gleði og eftirvænting.
Megir þú vaxa og blómstra á öllum sviðum lífs þíns eftir Sjakradans kennaranámið!
Markmið mitt er að þjálfa þig í að verða sjálfsörugg þegar þú leiðir aðra inn í þessa töfrandi dans upplifun.
Kær kveðja,
Marta Eiríks.
Dansþerapisti í yfir 20 ár 💃💖
Sjá nánari upplýsingar hér um kennaranámið:
https://facebook.com/events/s/sjakradans-kennaranam/2449241945557937/
www.martaeiriksdottir.com