Lopapeysan / Írskir dagar

Lopapeysan / Írskir dagar Lopapeysan er íslensk tónlistarhátíð haldin við Akraneshöfn á Írskum dögum í sementsskemmu, risa tjaldi og á útisvæði við hafnarbakkann.

Lopapeysan 2026Tryggðu þér miða á sér forsöluverði með því að skrá þig á póstlista á www.lopapeysan.is🎫Forsala fyrir klú...
10/05/2026

Lopapeysan 2026

Tryggðu þér miða á sér forsöluverði með því að skrá þig á póstlista á www.lopapeysan.is

🎫Forsala fyrir klúbbmeðlimi hefst þriðjudaginn 12. maí kl. 10:00.
🎫Almenn forsala hefst fimmtudaginn 14. maí kl. 10:00.

Tónlistarhátíðin, eða réttara sagt karnivalið, Lopapeysan hefur verið haldin fyrstu helgina í júlí á Írskum dögum síðan árið 2004. Það sem eitt sinn var stærsta sveitaball landsins hefur þróast í eitt stærsta og glæsilegasta tónlistarkarnival Íslands — upplifun þar sem tónlist, stemning og gleði renna saman í eina risastóra veislu.

Á síðasta ári komu fram 18 atriði, auglýst og óauglýst, á einu kvöldi. Dagskráin skiptist á þrjú ólík svið sem hvert um sig hefur sinn einstaka karakter:

💛Sementssviðið

Risa útisvið sem staðsett er fyrir neðan stóra sementstanka í frekar
grófu en sjarmerandi umhverfi við höfnina.

💛Guinness-tjaldið

Í ár verður dagskráin sett upp sem óður til gömlu sementsskemmunnar þar sem Lopapeysan var haldin á sínum fyrstu árum. Þar mun Stuðlabandið taka á móti fjölda gesta og óvænt augnablik verða til. Þetta er sviðið þar sem óvæntir hlutir gerast

💛Sirkustjaldið

Heimili rappsins, partístemningarinnar og tryllingslegra takta. Frá því að Sirkustjaldið bættist við hátíðarsvæðið hefur stemningin farið á næsta level — og það verður ekki aftur snúið

En Lopapeysan er miklu meira en tónleikar. Á svæðinu finnur þú
fjölbreytta afþreyingu, veitingasvæði, tívolí og bari víðs vegar um
14.000 fm hátíðarsvæði þar sem gleðin ræður ríkjum fram á nótt.

Lopapeysan heldur áfram að þróast ár frá ári með eitt markmið í huga: að skapa stærri, glæsilegri og eftirminnilegri upplifun fyrir alla sem mæta. Smá rómantík fylgir auðvitað alltaf með.

Brekkusöngur við Akranesvöll

Við Akranesvöll býðst gestum að hita upp með brekkusöng áður en haldið er inn á Lopapeysusvæðið við Faxabraut. Líkt og undanfarin ár verða það Hreimur og Magni sem leiða brekkuna með sannkallaðri brekkustemningu.

Brekkusöngurinn hefst kl. 19:30.

Nánari upplýsingar má finna á Lopapeysan.is


Ný heimasíða og forsala póstlista!Inn á  Lopapeysan.is finnur þú helstu upplýsingar um Lopapeysuna, Portið og aðra viðbu...
05/05/2026

Ný heimasíða og forsala póstlista!

Inn á Lopapeysan.is finnur þú helstu upplýsingar um Lopapeysuna, Portið og aðra viðburði sem fram fara á Lopapeysusvæðinu / Akraneshöfn.

Forsala póstlista verður 12 maí og almenn miðasala hefst 14 maí!

Póstlisti? Jú inná lopapeysan.is getur þú skráð þig á mögulega skemmtilegasta póstlista landsins, þau sem eru skráð á póstlista lopapeysunnar heyra fyrst af fréttum tengdum lopapeysunni og fá sendann forsölulink til þess að kaupa miða á forsölu verði.

Í aldanna rás höfum við komið saman og skemmt okkur á Akraneshöfn fyrstu helgina í Júlí og það verður engin breyting á því í ár, sjáumst á Akranesi fyrstu vikuna í Júlí.

Við sjáum um skemmtunina, þið þurfið bara að mæta og hafa gaman, það þarf að vera gaman annars er svo leiðinlegt!

Hlekkur á heimasíðuna okkar er í athugasemdum þessarar færslu.

01/07/2025
Eitt risa kvöld þar sem dagskráin getur varla orðið stærri.(english below)Lopapeysan hefst að venju með brekkusöng við A...
26/06/2025

Eitt risa kvöld þar sem dagskráin getur varla orðið stærri.

(english below)

Lopapeysan hefst að venju með brekkusöng við Akranesvöll kl: 19:15 þar sem Hreimur og Magni slá á strengi. Allir eru velkomnir í brekkuna en um ellefu þúsund manns sóttu brekkusönginn á síðasta ári. Strax í kjölfarið hefst Lopapeysan á hátíðarsvæðinu við Faxabraut þar sem eftirtaldir listamenn koma fram á þremur mismunandi sviðum.

Quarashi
Friðrik Dór
Birnir
Auddi Blö
Steindi
Sigga Beinteins
Stebbi Hilmars
Stuðlabandið
Ingi Bauer
Páll Óskar
Margrét Rán (GusGus/Vök)
Emmsjé Gauti
Daniil
Herra Hnetusmjör
Bríet
Hr. Eydís
Todmobile
auk fleiri leynigesta.

Dagskrána má sjá á meðfylgjandi mynd, hafa má í huga að tímasetningar geta tekið breytingum.

Á hátíðarsvæðinu, sem rúmar um 13.000 fermetra, er einnig úrval matarvagna ásamt börum og tívolí.

20 ára aldurstakmark er inn á Lopapeysuna, börn mega ekki koma í fylgd með fullorðnum.

Lopapeysan verður bara betri, hlökkum til að sjá ykkur laugardaginn 5. júlí á Írskum dögum á Akranesi.

Nánar á meðfylgjandi hlekk í comment.

Góða skemmtun.
___________________________________________

Lopapeysan, the Icelandic music festival.
One evening where the program can hardly get any bigger.

Lopapeysan starts as usual with a sing a long at Akranes stadium at 19:15 pm with Hreimur and Magni. Everyone is welcome, but around eleven thousand people attended last year. Lopapeysa begins right after at the festival grounds on Faxabraut where the following artists will perform on three different stages.

Quarashi
Friðrik Dór
Birnir
Auddi Blö
Steindi
Sigga Beinteins
Stebbi Hilmars
Stuðlabandið
Ingi Bauer
Páll Óskar
Margrét Rán (GusGus/Vök)
Emmsjé Gauti
Daniil
Herra Hnetusmjör
Bríet
Mr. Eydís
Todmobile
And other guests.

The program can be seen in the accompanying image.

At the festival area, which covers about 13,000 square meters, there is also a selection of food trucks along with bars and a carnival. There is a 20 year age limit for entry to Lopapeysan, children are not allowed to enter accompanied by adults.

Lopapeysan will only get better, we look forward to seeing you on Saturday, July 5th at the Irish Days in Akranes Iceland.

For more information, click the link below in the comments.

Have a good time.

Address

Faxabraut
Akranes
300

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lopapeysan / Írskir dagar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Lopapeysan / Írskir dagar:

Share