Aldrei fór ég suður

Aldrei fór ég suður Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Aldrei fór ég suður, Performance & Event Venue, Ísafjörður, Ísafjörður.

Aldrei fór ég suður er tónlistarhátíð sem haldin er á Ísafirði alla páska – aldrei.is
//
Aldrei fór ég suður is a music festival that's held in Ísafjörður, Iceland every Easter – aldrei.is

Glæsileg dagskrá á Bræðslu sumarsins! Við erum stolt af vinum okkar fyrir austan og hlökkum til 🤩
13/04/2026

Glæsileg dagskrá á Bræðslu sumarsins! Við erum stolt af vinum okkar fyrir austan og hlökkum til 🤩

Kæru vinir - Hér er listafólkið sem ætlar að leika fyrir okkur í sumar!
Miðasalan hefst kl.10:00 í fyrramálið á www.braedslan.is

Sjáumst í sumar.
…..vonandi skemmtiði ykkur vel!

💚  T   A   K   K  💚Okkar litla tónlistar- og fjölskylduhátíð, sem sett var á laggirnar fyrir 22 árum, fór fram á Ísafirð...
10/04/2026

💚 T A K K 💚
Okkar litla tónlistar- og fjölskylduhátíð, sem sett var á laggirnar fyrir 22 árum, fór fram á Ísafirði á páskahelginni. Fjöldi gesta hefur vart verið meiri og stemningin var gjörsamlega frábær. Við sem stöndum að hátíðinni erum með frosið bros og endalaust þakklát!

Við erum ótrúlega stolt af öllu því góða tónlistarfólki sem fram kom á hátíðinni ekki síður öllum okkar gestum sem eru alltaf til algjörs sóma.

Kampi, Ísafjarðarbær, Icelandair, Orkubú Vestfjarða, Landsbankinn, Kerecis, Eimskip, 66°Norður, Tónlistarsjóður og Rás 2 - takk fyrir að standa með okkur.

Við fengum frábæra aðstoð úr mörgum áttum í ár; Vesturferðir hýsti okkur, Ísafjarðarhafnir redduðu endalaust, Hertz skutlaði, Luxor sá um sándið, Nettó sá um aðföngin, CCEP um drykkina, West Travel ferjaði popparana okkar og skilaði þeim m.a.s. til Reykjavíkur eftir helgi, Snerpa tengdi, Laugi hífði, Húsið nærði okkur, Tjöruhúsið einnig, Hótelið og Hamraborg, HG, Rafskaut, GSF, RÚV, Húsasmiðjan, Vélsmiðja Þrastar Massa og Patrekur Rafn, Vestfirskir, Nói og Síríus, Góa, Eiríkur kokkur … og nánast hver einasti einstaklingur og fyrirtæki í okkar góða samfélagi studdi okkur. Maður gerir ekki rassgat einn!

Páskarnir eiga heima á Ísafirði - sjáumst 26.- 27. mars 2027 🥰
(📸 Hilmar Mathiesen / Thor Johann)

Við gengumst á dögunum í fóstbræðralag með vinahátíð okkar Bræðslunni á Borgarfiðri eystra. Það bræðralag styrkir enn fr...
04/04/2026

Við gengumst á dögunum í fóstbræðralag með vinahátíð okkar Bræðslunni á Borgarfiðri eystra. Það bræðralag styrkir enn frekar vinastreng okkar Vestfirðinga með Austfirðingum og við sendum hlýjar kveðjur austur. Austfirska hljómsveitin CHÖGMA stígur fyrst á svið í kvöld upp úr 19.30 og heiðrar því þetta fallega bræðralag með sínum hætti. Þið viljið ALLS ekki missa af þessari frábæru sveit og mætið því tímanlega!

Þakið ætlaði gjörsamlega af skemmunni í gærkvöldi! Gerum þetta aftur saman í kvöld! TAKK! ❤️📸: Hilmar Mathiesen & Thor J...
04/04/2026

Þakið ætlaði gjörsamlega af skemmunni í gærkvöldi!
Gerum þetta aftur saman í kvöld!
TAKK! ❤️

📸: Hilmar Mathiesen & Thor Johann.

Okkar allra besti páskagleðigjafi, Páll Óskar, frétti af diskókúluþema okkar í ár og kom hingað færandi hendi. Hann gaf ...
03/04/2026

Okkar allra besti páskagleðigjafi, Páll Óskar, frétti af diskókúluþema okkar í ár og kom hingað færandi hendi. Hann gaf okkur þessa glæsilegu diskókúlu til fjáröflunar og við ætlum að bjóða hana til sölu. Uppboð hefst frá og með fyrsta atriði kvöldsins en lýkur fyrir hátíðarlok annað kvöld. Heimsækið okkar fólk í Varningsskúrnum á svæðinu fyrir frekari upplýsingar eða sendið sms á Eygló varningsmeistara í síma, 895-7170.

03/04/2026

Minnum á að svæðið opnar kl 18:30 með ilmandi sælum og dúndrandi stemningu!
Hlökkum til að sjá ykkur!

Við erum í stuði og ætlum að skella í kvöldopnun í búðinni.Lokum kl. 17:00 og opnum aftur kl. 20:00! Kíkið í heimsókn! 🪩
02/04/2026

Við erum í stuði og ætlum að skella í kvöldopnun í búðinni.
Lokum kl. 17:00 og opnum aftur kl. 20:00!
Kíkið í heimsókn! 🪩

Ísafjarðarbær í samvinnu við West Travel býður upp á rútuferðir til og frá nágrannabyggðalögunum yfir á Ísafjörð á Aldre...
02/04/2026

Ísafjarðarbær í samvinnu við West Travel býður upp á rútuferðir til og frá nágrannabyggðalögunum yfir á Ísafjörð á Aldrei-helginni. Einnig verður tekinn rúntur inn í fjörð.
Framúrskarandi framtak og við hlökkum til að fá okkar besta fólk á svæðið!

Hér eru brottfarartímar:
- Suðureyri 18:30 (við Póstboxið)
- Flateyri 18:40 (við Bensínstöðina og Gunnukaffi)
- Þingeyri 18:00 (við Bensínstöðina)
- Holtahverfi 18:40 (strætóleið)

Svo er brottför til baka af Aldrei-svæðinu (við Háskólasetur) kl. 00:15.

Ísafjarðarbær í samvinnu við West Travel býður upp á rútuferðir til og frá nágrannabyggðalögunum yfir á Ísafjörð á Aldrei-helginni.

01/04/2026

Ert þú að koma vestur í fyrsta skiptið? Þá er þetta vídjó fyrir þig!

Bolirnir eru mættir í hús! Búðin er opin 13-19 í dag. Hlökkum til að sjá ykkur!
01/04/2026

Bolirnir eru mættir í hús!
Búðin er opin 13-19 í dag.
Hlökkum til að sjá ykkur!

Svona verður þetta! 🪩Mætum tímanlega og fyllum skemmuna!
31/03/2026

Svona verður þetta! 🪩
Mætum tímanlega og fyllum skemmuna!

Address

Ísafjörður
Ísafjörður
400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Aldrei fór ég suður posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Aldrei fór ég suður:

Share