08/01/2025
ÁRAMÓTAKVEÐJA
KRÓMÍK þakkar öllum samstarfsaðilum og þeim sem notið hafa afraksturs listamanna KRÓMÍKUR fyrir gefandi, gleðilegt og kröftugt ár og óskar öllum farsældar og sköpunar á komandi ári
Árið 2024 var viðburðarríkt og gefandi fyrir KRÓMÍK. Ber þá fyrst og fremst að nefna stofnun KRÓMÍKUR haustið 2024 í kjölfar 1 árs starfsafmæli TÝRU VERKEFNASTÝRINGAR. Í kjölfarið einkenndist haustið af fjölbreyttum verkefnum á sviði lista, menningar og markaðssetningar, allt frá hönnun heimasíðna til stórviðburðar. Skjálftinn 2024, hæfileikakeppni grunnskólanna á Suðurlandi var haldin með pompi og prakt þar sem sunnlensk ungmenni sprengdu sköpunarkraft sinn yfir landið allt bæði á sviði og í sjónvarpi allra landsmanna, Rúv. Það var hrein unun að vinna með stóru teymi gefandi listafólks úr öllum áttum sem saman létu listahátið unga fólks SKJÁLFTANS verða að veruleika. Þess ber þó helst að nefna stofnanda og framkvæmdastjóra keppninar, Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur.
KRÓMÍK sett einnig á laggirnar samfélag listamanna sem hefur það að markmiði að styðja við fjölbreytileika í listum, efla tengslanet með mósaík ólíkra listforma sem og að styðja við listafólk í verkefnum KRÓMÍKUR. Munu nýjir vinkla á því verkefni verða kynntir á nýju ári.
KRÓMÍK tók einnig að sér spennandi verkefni í framleiðslu verkefna þar sem verkefni eru leidd frá fjármögnun til afraksturs.
Þjónusta á sviði markaðssetningar fékk sérstakt vægi hjá KRÓMÍK þar sem tekin eru fyrir ólík verkefni svo sem markaðsstjórn, samfélagsmiðlaumsjá, framleiðsla á kynningarefni, hönnun og gerð á heimasíðum, þjónusta við markaðsáætlanir o.fl. og erum við hjá KRÓMÍK spennt að gefa þjónustunni enn meira vægi á komandi misserum.
KRÓMÍK er í stöðugri uppbyggingu og tökum við á móti nýju starfsári með mikilli tilhlökkun og þakklæti fyrir alla sem starfað hafa með KRÓMÍK og alla þá sem sýnt hafa KRÓMÍK ómetanlegan stuðning og hvatningu!
Skapandi hugsun í öflugu skipulagi.
GLEÐILEGT ÁR!
Teymi KRÓMÍKUR
Fylgist með okkur á kromik. is og kromik.productions á instagram
Skjálftinn TÝRA Translations music Iris Thorarins Halldóra Rut Baldursdóttir Pétur Oddbergur Heimisson RÚV Arngerður María Árnadóttir Arnar Pétursson Fabien Ericsson